Á stofunni erum við með ýmsar gæludýravörur í boði. Við erum með hágæða sjúkrafóður frá Royal Canin og Hill's, fæðubótaefni, nagbein og nammi og bætiefni frá Dr. Clauder's.
Við erum með gæða ólar og tauma frá Rogz fyrir hunda og ketti
Einnig seljum við og mælum með hundaleikföngum og þjálfunarvörum frá Kong og Chuckit
Á stofunni eigum við hina afar vinsælu Furminator kamba sem skafa burt öll laus hár
Við erum almennar feldhirðuvörur frá BioGroom og lyfjasjampó fyrir viðkvæma húð frá Dechra
Að auki erum við með ýmsar smávörur fyrir hunda og ketti svo sem Pet Remedy olíurnar, Pro-Kolin og Prolac meltingarfæragerla, tannhirðuvörur, nagbein, nammi, leikföng, sand og hina sívinsælu selolíu